Allar skýrslur aðgengilegar á einum stað

14/06/2018

Nú hafa allar skýrslur, sem tengjast Hvalárvirkjun eða öðrum verkefnum VesturVerks, verið gerðar aðgengilegri á einum stað hér á vefsíðu fyrirtæksins undir flipanum "Skýrslur" efst í hægra horni síðunnar. Er það gert til að auðvelda áhugasömum aðgengi að öllu því vandaða og faglega efni sem safnast hefur saman á liðnum árum - einkum í tengslum við Hvalárvirkjun.

Skýrslurnar spanna allt frá fornleifaathugunum í Árneshreppi frá árinu 2003 til matsskýrslunnar um umhverfisáhrif Hvalárvirkjunar, sem grundvallast í stórum dráttum á þeim skýrslum sem fyrir liggja. Einnig er að finna tvær skýrslur Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri frá því snemma árs 2018 þar sem lagt var mat á samfélagsáhrif Hvalárvirkjunar, annars vegar í Árneshreppi og hins vegar á Vestfjörðum.

Skýrslur tengdar verkefnum VesturVerks verða gerðar aðgengilegar jafnóðum og þær liggja fyrir.

Allar skýrslur um Hvalárvirkjun liggja nú fyrir á einum aðgengilegum stað á vefsíðu VesturVerks. Hér má t.d. sjá yfirlitskort úr matsskýrslunni um fyrirhugaðar vegabætur á framkvæmdasvæði Hvalárvirkjunar. (Mynd: Verkís)