Þótt áfram sé unnið hörðum höndum að undirbúningi Hvalárvirkjunar er ekki útlit fyrir að hægt verði að hefja undirbúningsframkvæmdir á þessu sumri, eins og að var stefnt. Ekki er þó útilokað að hægt verði að fara í minniháttar framkvæmdir síðsumars eða í haust ef aðstæður leyfa.
Tafirnar stafa einkum af því að fara þurfti í frekari fornleifaskráningar til að ljúka deiliskipulagsbreytingum sem eru forsenda framkvæmdaleyfis. Gera þarf ráð fyrir umsagnarfresti vegna framkvæmdaleyfisins og þá er veðurglugginn til framkvæmda orðinn frekar lítill. Seinkun á niðurstöðu Hæstaréttar í landamerkjamáli Drangavíkur og Engjaness viðheldur einnig óvissu um hönnunarforsendur virkjunarinnar.
Fulltrúar VesturVerks funduðu nýverið með forsvarsmönnum Vegagerðarinnar til að fara yfir niðurstöður athugunar sem VesturVerk lét gera um flutninga á þyngsta og fyrirferðarmesta búnaði Hvalárvirkjunar og nauðsynlegar vegbætur vegna þeirra. Einnig hefur VesturVerk átt fund með fulltrúum innviðaráðuneytis til að ræða hvort hægt verður að fá verkefnum á Strandavegi og Ófeigsfjarðarvegi í Árneshreppi flýtt þannig að vegbætur geti farið saman með framkvæmdum VesturVerks og Landsnets vegna Hvalárvirkjunar.
Tvö mál hafa verið til umfjöllunar dómstóla að undanförnu. Fyrra málið varðar auðlindaréttindi í landi Engjaness, en þar krefst ríkið staðfestingar á eignarhaldi sínu á vatns-, námu- og jarðhitaréttindum. Fékk ríkið staðfestingu fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í maímánuði en ekki liggur fyrir hvort málinu verður áfrýjað til næsta dómstigs. VesturVerk hefur fengið yfirlýsingu frá fjármálaráðuneytinu þess efnis að ríkið samþykki að semja við VesturVerk um auðlindanýtinguna í samræmi við gerðan samning við landeiganda Engjaness. Hefur dómurinn því ekki áhrif á samninga um vatnsréttindi vegna Hvalárvirkjunar. Núverandi eigandi Engjaness á hins vegar öll almenn landréttindi.
Hitt dómsmálið sem um ræðir er milli Drangavíkur annars vegar og Engjaness og Ófeigsfjarðar hins vegar. Í því máli er deilt um mörk jarðanna og er málið nú fyrir Hæstarétti sem tekur það til dóms í september næstkomandi.
Hitt dómsmálið sem um ræðir er milli Drangavíkur annars vegar og Engjaness og Ófeigsfjarðar hins vegar. Í því máli er deilt um mörk jarðanna og er málið nú fyrir Hæstarétti sem tekur það til dóms í september næstkomandi.
VesturVerk hefur skoðað ítarlega fyrri áætlanir og útfærslur á Hvalárvirkjun og vinnur nú að endurmati á rennsli til virkjunarinnar og endurskoðun á kostnaðaráætlun verkefnisins í heild. Einnig standa yfir viðræður við Landsnet um kerfisframlag VesturVerks vegna tengingar við flutningskerfi raforku.
Deiliskipulag fyrir undirbúningsframkvæmdir er í fullum gangi, viðbótarrannsókn á fornleifum stendur yfir og að henni lokinni verður sótt um framkvæmdaleyfi fyrir undirbúningsframkvæmdum, þ.e. brúun Hvalár, vegslóðagerð, lagningu jarðstrengs, jarðvegsrannsóknir uppi á Ófeigsfjarðarheiði og lóð fyrir litlar vinnubúðir.
Síðastliðið haust var erlent matsteymi hér á landi við gerð HSS sjálfbærnimats (Hydropower Sustainability Standard) á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar. Strax í kjölfarið var gefin út HSS matsskýrsla eða svokölluð „Preliminary Assessment Report” og ber hún það heiti þar sem niðurstöður hennar hafa enn ekki farið í gegnum opið samráðsferli.
Niðurstöður skýrslunnar eru þær að undirbúningur verkefnisins uppfylli lágmarkskröfur staðalsins í öllum þeim tíu flokkum sem eru til grundvallar matinu á undirbúningsstigi virkjunarinnar. Umframkröfur (Advanced requirements) eru jafnframt uppfylltar að nægilega stórum hluta til að verkefnið sé hæft fyrir svokallaða gullvottun hinna alþjóðlegu Hydropower Sustainability samtaka.
VesturVerk nýtti sér átta mánaða endurskoðunartímabil fyrir skýrsluna. Því tímabili lauk þann 9. maí síðastliðinn og matsaðilinn hafa nú tvo mánuði til að rýna nýjustu gögn um verkefnið og meta hvort tilefni sé til breytinga á niðurstöðum matsskýrslunnar.
Að því gefnu að engar breytingar verði á matinu, að teknu tilliti til lágmarkskrafna staðalsins, mun skýrslan í kjölfarið fara í opna kynningu og samráðsferli. Miðað við áætlaða tímalínu er gert ráð fyrir því að ferlið hefjist um miðjan ágúst.