
Í Norðurfirði í Árneshreppi.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í gær úr gildi leyfi Árneshrepps til undirbúningsframkvæmda vegna Hvalárvirkjunar. Framkvæmdaleyfið, sem hreppsnefnd samþykkti í ágúst á síðasta ári, var kært til úrskurðarnefndarinnar af nokkrum náttúrverndarsamtökum.
Úrskurður nefndarinnar er efnismikill og vandaður. Áður en VesturVerk tekur ákvörðun um næstu skref í undirbúningi Hvalárvirkjunar verða niðurstöður í úrskurðinum og ábendingar úrskurðarnefndarinnar greindar og metnar og rætt við sveitarfélagið og hlutaðeigandi stofnanir, s.s. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, um framhald undirbúningsins.
Meginniðurstaða úrskurðarnefndarinnar er sú að álit Skipulagsstofnunar frá því í apríl 2017 um matsskýrslu framkvæmdaraðila, sem og matsskýrslan sjálf, séu haldin slíkum annmörkum að þau nægi ekki sem grundvöllur fyrir ákvörðunartöku um framkvæmdaleyfi fyrir undirbúningsframkvæmdunum. Stefnt hafði verið að því að hefja þær framkvæmdir í sumar.
Athugasemdir nefndarinnar varða einkum framkvæmdina í heild sinni en nefndin telur ekki unnt að fjalla um undirbúningsframkvæmdirnar án þess að huga að samhengi þeirra við framkvæmdir við virkjunina í heild sinni.
Í niðurstöðu sinni vísar úrskurðarnefndin einnig til þess að við mat á gildi hinnar kærðu ákvörðunar sé nægilegt að vísa til þess að leyfisveitanda, þ.e. sveitarfélaginu, hafi verið skylt að taka rökstudda afstöðu til framkvæmdanna á grundvelli vatnaáætlunar og laga nr. 36/2011. Það hafi ekki verið gert og styður það ákvörðun um ógildingu leyfisveitingarinnar.