Framkvæmdaleyfi vegna undirbúningsframkvæmda fellt úr gildi

28/03/2026
Deila

Norðurfjörður 30km

Í Norðurfirði í Árneshreppi.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í gær úr gildi leyfi Árneshrepps til undirbúningsframkvæmda vegna Hvalárvirkjunar. Framkvæmdaleyfið, sem hreppsnefnd samþykkti í ágúst á síðasta ári, var kært til úrskurðarnefndarinnar af nokkrum náttúrverndarsamtökum.

Úrskurður nefndarinnar er efnismikill og vandaður. Áður en VesturVerk tekur ákvörðun um næstu skref í undirbúningi Hvalárvirkjunar verða niðurstöður í úrskurðinum og ábendingar úrskurðarnefndarinnar greindar og metnar og rætt við sveitarfélagið og hlutaðeigandi stofnanir, s.s. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, um framhald undirbúningsins.