Nýtt umhverfismat vegna Hvalárvirkjunar undirbúið

7/10/2026
Deila

Vinna er hafin við nýtt og endurskoðað umhverfismat vegna Hvalárvirkjunar en matsskýrsla og álit þáverandi Skipulagsstofnunar eru frá árinu 2017 og því tímabært að endurskoða og bæta úr annmörkum í takti við breyttar áherslur og skýrari reglur, til dæmis þær sem varða vatnamál.

Við endurskoðunina styðst VesturVerk meðal annars við ábendingar sem fram komu í áliti úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sem gefið var út í mars á þessu ári, um framkvæmdaleyfi fyrir undirbúningsframkvæmdir Hvalárvirkjunar.

Unnið er að gerð matsáætlunar sem lögð verður fyrir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) á næstu vikum.

VesturVerk bindur vonir við að umhverfismatsferlinu ljúki um mitt næsta ár og í kjölfarið verði lokið við skipulagsmál og leyfismál fyrir framkvæmd og vatnshlot virkjunarinnar.

Ófeigsfjarðarheiði.
Ófeigsfjarðarheiði.