Orkuþing Vestfjarða

27/02/2026
Deila

Orkuþing Vestfjarða verður haldið föstudaginn 6. mars í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Þar munu helstu hagaðilar í orkumálum svæðisins koma saman til að ræða stöðu, framtíðarsýn og tækifæri í orkuuppbyggingu á Vestfjörðum. Ásbjörn Blöndal, stjórnarformaður VesturVerks, verður meðal framsögumanna og mun hann segja frá stöðu undirbúnings Hvalárvirkjunar.

Á þinginu verður farið yfir lykilverkefni í orkumálum á svæðinu, framvindu þeirra, tímalínur og þær áskoranir sem samfélögin og atvinnulífið á Vestfjörðum standa frammi fyrir.

Jafnframt verður fjallað um þau tækifæri sem felast í aukinni orkuöflun, bættu orkuöryggi og orkuskiptum í landshlutanum. Þingið er öllum opið. 

Dagskrá

11:30 Fundarsetning – Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
11:45 Vesturverk – Hvalárvirkjun
12:00 Orkubú Vestfjarða – jarðhiti
12:15 EM-Orka – vindorka
12:30 Hlé – hádegisverður
13:00 Arctic Hydro – Austurgilsvirkjun
13:15 Orkubú Vestfjarða – vatnsafl
13:30 Landsnet – tenging við flutningskerfið
13:45 Pallborðsumræður