Orkuþing Vestfjarða verður haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á miðvikudaginn kemur en þar mun Ásbjörn Blöndal, stjórnarformaður VesturVerks, m.a. greina frá stöðu undirbúnings Hvalárvirkjunar. Jóhann Páll Jóhannsson, orku-, umhverfis- og loftslagsráðherra, setur þingið. Fyrirhugað var að orkuþingið færi fram snemma í vor en því var frestað vegna veðurútlits.
Á þinginu koma sama helstu hagaðilar í orkumálum Vestfirðinga til að ræða stöðu, framtíðarsýn og tækifæri í orkuuppbyggingu á Vestfjörðum. Farið verður yfir lykilverkefni í orkumálum á svæðinu, framvindu þeirra, tímalínur og þær áskoranir sem samfélög og atvinnulíf Vestfjarða standa frammi fyrir á komandi árum. Jafnframt verður fjallað um þau tækifæri sem felast í aukinni orkuöflun, bættu orkuöryggi og orkuskiptum í landshlutanum.
Dagskrá
11:30 Hádegisverður
12:15 Fundarsetning - Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
12:30 Blámi - inngangur
12:45 Orkubú Vestfjarða - jarðhiti
13:00 Landsnet - flutningskerfið
13:15 EM - Orka - vindorka
13:30 Kaffihlé
13:45 Arctic Hydro - Austurgilsvirkjun
14:00 Vesturverk - Hvalárvirkjun
14:15 Orkubu Vestfjarða - vatnsafl
14:30 Pallborðsumræður
Að loknum pallborðsumræðum verður boðið upp á kaffi og meðlæti.