Skúfnavatnavirkjun, 16 MW virkjunarkostur VesturVerks í botni Ísafjarðardjúps, er komin í nýtingarflokk rammaáætlunar eftir að Alþingi samþykkti á miðvikudag þingsályktunartillögu um breytingu á áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Áætlunin gengur almennt undir heitinu rammaáætlun. Með tillögunni var Hvanneyrardalsvirkjun, um 11 MW virkjunarkostur VesturVerks í botni Ísafjarðar í Ísafjarðardjúpi, sett í biðflokk. Þetta kemur fram frétt á vef umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.
Með ákvörðun Alþingis nú bætast þrír nýir virkjunarkostir í orkunýtingarflokk og tveir í biðflokk. Virkjunarkostirnir sem Alþingi staðfesti í orkunýtingarflokk í dag geta samanlagt skilað nærri einni terawattstund af endurnýjanlegri raforku á ári verði þeir fullnýttir.
Virkjunarkostirnir þrír eru Skúfnavatnavirkjun og Tröllárvirkjun á Vestfjörðum ásamt jarðvarmakostinum Bolaöldu á Hellisheiðarsvæðinu. Með ályktun sinni staðfestir Alþingi að virkjunarkostirnir geti farið áfram í leyfisveitingarferli samkvæmt gildandi lögum, að undangengnum frekari rannsóknum og mati eftir því sem við á. Með þingsályktuninni voru jafnframt Hvanneyrardalsvirkjun á Vestfjörðum og Hamarsvirkjun á Austurlandi settar í biðflokk.
Hér má lesa nánar um tilhögun Skúfnavatnavirkjunar.
Í frétt ráðuneytisins á miðvikudag segir: „Virkjunarkostirnir sem nú hafa verið samþykktir í nýtingarflokk koma til viðbótar þeim sem samþykktir voru í orkunýtingarflokk rammaáætlunar fyrr á árinu, þ.e. Skrokköldu, sem er með orkugetu um 392 GWst/ári, og Holtavirkjun, með orkugetu um 450 GWst/ári. Alls geta orkukostirnir fimm skilað tæpum tveimur terawattstundum af endurnýjanlegri orku á ári.
Þingsályktunin sem samþykkt var í dag byggir á vinnu verkefnisstjórnar 5. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar sem lagði mat á fimm virkjunarkosti í vatnsafli og jarðvarma, en rammaáætlun er ætlað að skapa fyrirsjáanleika um nýtingu orkuauðlinda landsins með heildstæðu frummati sem tekur bæði til umhverfissjónarmiða og samfélagslegra þátta."