Undir lok nýliðins árs lauk rúmlega tveggja ára ferli alþjóðlegs HSS sjálfbærnimats á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar á Ströndum. Matið fól í sér ítarlega úttekt erlendra matsmanna sem komu til landsins haustið 2024 og áttu samtöl við breiðan hóp hagaðila, rýndu undirbúningsgögn verkefnisins og skoðuðu fyrirhugað framkvæmdasvæði.
Eftir opið umsagnarferli hefur lokamatsskýrsla verið gefin út af HS Alliance (Hydropower Sustainability Alliance) og hlýtur verkefnið gullvottun samtakanna. Þetta er í annað sinn sem slík gullvottun er veitt vegna sjálfbærnimats á vatnsaflsvirkjun á Íslandi. Virkjun Hvalár í Ófeigsfirði er í nýtingarflokki rammaáætlunar og hefur verið í undirbúningi af hálfu VesturVerks um langt árabil.
Sjálfbærnimatið felur í sér greiningu á tíu undirbúningsþáttum verkefnisins þar sem annars vegar er horft til lágmarksviðmiða og hins vegar ítrustu gæðaviðmiða HSS staðalsins fyrir sjálfbæra vatnsorku (Hydropower Sustainability Standard).
Bráðabirgðamatsskýrsla fór í opið umsagnarferli í ágúst til október 2025 þar sem hagaðilar fengu tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum varðandi matið. Yfirlit yfir innsendar athugasemdir og svör matsmanna við þeim hefur verið birt ásamt matsskýrslunni á síðu verkefnisins hjá HS Alliance.
Í matinu er ljósi varpað á ólíka undirbúningþætti verkefnisins og þeir settir í samhengi við það afskekkta umhverfi og viðkvæma samfélag sem virkjunin kemur til með að hafa áhrif á. Jafnframt er bent á mikilvægi ýmissa mótvægisaðgerða og áframhaldandi þróunar áætlana og aðgerða sem snúa að því að lágmarka neikvæð áhrif verkefnisins og hámarka jákvæð áhrif fyrir samfélagið.
Í frétt um vottunina á vefsíðu HS Alliance er gerð góð grein fyrir matsferlinu og þar segir meðal annars:
„Um er að ræða 55 MW virkjunarkost í eigu VesturVerks sem enn er á undirbúningsstigi. Virkjuninni er ætlað að styrkja raforkukerfið á Vestfjörðum ásamt því að draga úr þörf á orkuframleiðslu með díselolíu. Enda þótt Ísland framleiði nú þegar mikla endurnýjanlega raforku er ljóst að Hvalárvirkjun getur mætt skýrri svæðisbundinni orkuþörf. Virkjunin er þjóðhagslega hagkvæmari og loftslagsvænni orkukostur en díselolía.
Gullvottun Hvalárvirkjunar varpar ljósi á gagnsemi þess að verkefni gangist undir mat á fyrri stigum undirbúnings svo tryggt sé að sjálfbærniþættir séu afmarkaðir svo taka megi á áskorunum í tíma.“